Þriðjudagur, 6. febrúar 2024
Batnandi mönnum er best að lifa
Þeir hafa séð að sér.
Borgin biðst afsökunar og endurgreiðir sektina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 3. febrúar 2024
Misnotkun á valdi
Má það vera að fulltrúar borgarinnar séu að mismuna íbúum hennar ?
Annars vegar gerræði í garð venjulegra borgara en á hinn bóginn sé látið átölulaust og leyfð sama hegðun ef þú ert í klíkunni.
Ég sé t.d. engar fréttir af stöðumælasektum á óbyggðum lóðum í Þingholtunum eins og Óðinsgötu 8C.
Skv. deiliskipulagi eru engin bílastæði þar.
Reglurnar eru skýrar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16. janúar 2024
LOKSINS
Mánudagur, 19. desember 2022
Tengibrautir ekki ruddar í Grafarholti
Síðasti vetur sýndi að Reykjavíkurborg var ekki að moka húsagötur en hélt þó tengileiðum og stofnbrautum opnum.
Nú sýnir sig að tengibrautir eru ekki ruddar svo þjónusta Reykjavíkurborgar er enn að minnka.
Hreinsun húsagatna gæti tekið fimm daga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 21. febrúar 2022
Borgaryfirvöld með buxurnar niður um sig.
Eins og segir í fréttinni, þá ræður vetrarþjónusta Reykjavíkurborgar ekki við verkefnið.
Það kemur svona út:
Þegar snjóaði aðfaranótt 14.2.2022 þá lokaðist gatan sem ég bý við. Þar er svo háttað að þar er töluverð brekka og því erfitt að komast upp á vegi sem strætó keyrir um. Þar að auki er í brekkunni opið ofan af heiði og í austan og suðaustanátt, þá skefur mikið inn á brekkuna.
Þegar ekki bólaði á neinum bílum á vegum vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar, var kvartað. Svörin voru; taktu strætó !!
En það var heldur ekki lausn; strætóleiðir voru ekki mokaðar nema að litlu leyti svo strætó keyrði framhjá hverfinu.
Þegar enn ekki bólaði á ruðningstækjum þá var enn kvartað. Svörin voru;
Mokstur húsagatna getur tekið 4-5 sólarhringa frá síðustu úrkomu.
Sem þýðir að hundruðir íbúa komast ekki til vinnu svo dögum saman. Hvað segja atvinnurekendur við því ?
Snjómokstur í ólestri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 21. maí 2021
Pawel í Geldingadölum
Það mætti halda að Pawel viti ekki af eldgosi í Geldingadölum.
Forsendur fyrir flutningi flugvallar í Hvassahraun eru breyttar eftir að eldvirkni byrjaði á Reykjanesi eftir 800 ára hlé.
Beina Gæslunni í Hvassahraun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 16. apríl 2021
Þeim er ekki viðbjargandi
Núverandi flokkum sem mynda borgarstjórn Reykjavíkur er ekki viðbjargandi.
Þeir halda að peningarnir vaxi á trjánum og gera allt til þess að stöðva alla verðmætasköpun í Reykjavík og í landinu.
Verðmætasköpun er það sem stendur undir velferðinni. Ef hægt er á snúningi atvinnulífsins minnkar verðmætasköpunin og mun leiða til hallarekstur borgarinnar í framtíðinni.
Þeir ættu frekar að sópa götur og auðvelda för um borgina (án þess að hætta á covid-smiti í almenningssamgöngum).
Borgin ákveður hámarkshraða á borgargötum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 29. júlí 2020
Nornaveiðar
Ætli þessi uppákoma með Ólaf Helga sé vegna þess að hann var að styðja aðgerðir fyrrverandi ríkislögreglustjóra, Haralds;
sjá
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/09/23/atta_logreglustjorar_af_niu_vantreysta_haraldi/
Ólafur gæti endað í Vestmannaeyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 7. apríl 2019
Einkennileg afstaða dósents við HÍ
Sem fræðimanni ætti hann ekki að tala í hálfkveðnum vísum.
Ef hann vill koma fram og verja krónuna og fjármagnseigendur ætti hann að nefna það sem fræðimaður (missti reyndar af Þingvöllum á K100) en í staðinn er hann að rugla í almenningi.
Krónan er góð fyrir fjármagnseigendur, sérstaklega verðtryggða krónan. Krónan er mjög slæm fyrir skuldara því þeir þurfa að halda uppi óráðsíu í landinu og tryggja um leið fjármagn fjármagnseigenda. Skuldarar eru ekki tilbúnir í þann leik lengur svo fjármagnseigendur ættu ekki að eiga kost á verðtryggingu eða óverðtryggðum vöxtum sem jafnast á við verðtryggingu. Krónan og okurvextir væru þá liðin tíð.
Satt best að segja snargalið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 6. október 2018
Sjálfsagt mál að taka áskoruninni !
Fyrir það fyrsta væri rétt að gjöld sem þegar eru lögð á bíleigendur rynnu í umferðabætur. Það er ekkert réttlæti í því að bíleigendur borgi meira til samfélagsþjónustunnar en aðrir, t.d. þeir sem hola sér niður í 101 Reykjavík og ferðast um án bifreiða.
Einnig er hægt að hefja nýja skattlagningu á peningaprentun bankanna.
Skattleggjum síðan spákaupmennsku í tengslum við fjármálakerfið. Svona útvíkkaður Tobin-skattur sem næði til allra fjármálahreyfinga í landinu myndi skila nægjanlega miklum peningum í ríkiskassann. Auðvitað væri persónufrádráttur á þessum skatti svo hefðbundnar fjármálahreyfingar venjulegs fólks væru skattfrjálsar.
Skorar á andstæðinga veggjalda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)