Til hamingju Hanna Birna !!

Nú þegar skoðanakannanir benda til mikils fylgistaps sjálfstæðismanna í Reykjavík, er ekki úr vegi að spyrja af hverju ??

Hanna Birna hefur nú tækifæri til þess að vinna fylgið til baka. Þetta er tækifæri sem hún ætti ekki að láta renna sér úr greipum. hanna_birna

Sem ráðleggingu til hennar, þá ætti hún að spyrja sig, hverjir studdu Sjálfstæðisflokkinn í síðustu borgarstjórnarkosningum og velta fyrir sér hvað þeir kjósendur vilja.

Hún ætti, t.d. að byrja á því að andæfa sterklega orðum hafnfirðings úr Samfylkingunni, sem nú er formaður fjárlaganefndar Alþingis og vill fresta Sundabraut ennfrekar. Enga hjálp virðist vera að fá hjá núverandi samgönguráðherra (sem einnig er úr Samfylkingunni) sem vill eingöngu jarðgöng í sinni heimabyggð og er alveg sama um vandamál úthverfa Reykjavíkur.


mbl.is Hanna Birna verður borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband