Sunnudagur, 26. apríl 2009
Líttu þér nær Vilhjálmur Egilsson
Sjálfstæðisflokkurinn brást kjósendum sínum þar sem þeir tóku óeðlilega mikið tillit til þeirra sem borguðu þeim fé í sjóð og tóku hagsmuni þeirra framyfir hagsmuni þjóðarinnar (með aðgerðaleysi sínu).
Sá eini sem ekki lét múta sér var Davíð !!
Mér kæmi ekki á óvart ef Vilhjálmur hafi eitthvað óhreint í pokahorninu, amk. gengur hann fram fyrir skjöldu og fjárfestir lífeyri landsmanna í vogunarsjóðum.
Hann var sem sé að ávaxta féð án siðferðis. Hvar ætlar hann að stoppa ? Sagt er að mikil gróðavon sé í fíknaefnainnflutningi.
Davíð eyðilagði landsfundinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:29 | Facebook
Athugasemdir
Það vantar ekki að Vilhjálmur er mikill eftirá spekingur og sérfræðingur í hælnagi, þó ekkert hafi hann fyrir sér í því.
Bjarni Einarsson (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 11:54
Davíð nelgdi naglann í sína eigin pólitísku kistu með ræðu sinni á flokksþinginu. Það er sorglegt og til vitnis um innra siðferðis og hugsjónahrun flokksins að fyrir Davíð skuli hafa verið klappað. Sem betur fer er hann horfinn af sjónarsviðinu, í bili að minnsta kosti. Hans tími er liðinn og nú þarf Sjálfstæðisflokkurinn að gera upp við valdatíma hans sem í senn færðu flokknum nýtt gulladarskeið og síðan, í kjölfar þess, hans mesta hrun og lítillækkun.
Grétar Einarsson
Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson , 26.4.2009 kl. 11:56
Hverskonar skrif eru þetta eiginlega um Vilhjálm? Maðurinn var einfaldlega að benda á einfalda staðreynd sem blasir við öllum sem ekki eru blindaðir af FLokksaga í FL-okknum.
Davíð eyðilagði miklu fleira en landsfundinn, hans örlög eru að hafa rústað sínu eigin ævistarfi með heimsku, hroka og yfirgangi í fullkomnu dómgreindarleysi fyrrverandi leiðtoga sem hefur verið hafnað. Davíð er dæmigert "nýju fötin keisarans" case, og FLokkseigendur (náhirðin) eru í hlutverki þjóðarinnar sem dáðist að honum. Villi er kannski bara eins og litli drengurinn sem benti á keisarann og sagði "hann er ekki í neinu".
Rex (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 11:56
Hann er svolítið óþekkur hann Davíð. Vilhjálmur flaut sofandi að feigðarósi eins og margir fleiri. Honum fannst ekkert varasamt við þessa gífurlegu skuldasöfnun og sagði alltaf að það væru eignir á móti. Frekar einfeldnislegt hjá piltinum sérstaklega þegar litið er til hans menntunar. Hann átti að vita betur.
Guðmundur Pétursson, 26.4.2009 kl. 14:48
Vert er að hafa í huga hvernig skoðanir íslendinga mótuðust; hverjir áttu fjölmiðlana og hvernig fjölmiðlarnir innprentuðu hatur á Davíð þar sem hann spilaði ekki með eins og hinir.
Vignir Bjarnason, 26.4.2009 kl. 17:17
Ekki hata ég Davíð og nóg átti hann og á af stuðningsfólki í fjölmiðlum sem og annars staðar.
Grétar Einarsson
Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson , 26.4.2009 kl. 17:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.