Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Steingrímur, hvers vegna eru uppsagnarákvæði í samningunum ?

Ef samningsaðilar íslendinga eru svona góðir, hvers vegna þurfa þeir að hafa uppsagnarákvæði í samningunum ??

Steingrímur, hvers vegna er skilningur þinn á samningunum ekki beint skrifaður í samninginn ?

Væri hægt að fá samningsaðila til að skrifa undir skilning þinn á samningunum ???


mbl.is Enginn sýnt fram á að samningurinn stofni Íslandi í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver verða viðbrögðin ef Alþingi hafnar ríkisábyrgðinni ?

Nú hafa bretar aflétt kyrrsetningu Landsbankans í Bretlandi. Hvað gerist ef Alþingi Íslendinga hafnar ríkisábyrgðinni og vísar á nokkur atriði sem stangast á við stjórnarskrá og önnur atriði sem ekki koma til greina ?

Er ekki best að senda sendinefndina aftur út og láta semja um lægri vexti og láta breyta þeim greinum sem ógna sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar.

 


mbl.is Icesave-samningar birtir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eva er mikilvæg fyrir íslensku þjóðina

Nauðsynlegt er að hafa heiðarlegt sjónarhorn á málunum. Munið að lang flestir alþingismenn og ráðherrar og frammá menn í þjóðfélaginu eru spilltir, þeir tóku við peningum þeirra sem brutu lögin og litu þessa brotamenn velvildaraugum, stoppuðu ekki í lagagötin og létu eftirlitið vera gagnslaust árum saman, þrátt fyrir sterk merki um vandamál í mörg ár.

 Því munu margir vilja að rannsóknin dagi uppi og er þetta þeirra aðferð; fjársvelti, mannsvelti, tækjasvelti og upplýsingasvelti.

Rétt að minna á; Samfylkingin var í stjórn og er ennþá í stjórn. Þau fengu stórar fjárhæðir í flokkssjóð og prófkjörin þeirra voru fjármögnuð með sömu skítugu peningunum.

Munið eftir því sem Davíð Oddsson sagði; skoða ætti betur einkahlutafélög alþingismanna og valdamanna í stjórnkerfinu. Hvaða fyrirgreiðslu fengu þeir ? Þ.e. hvernig var þeim hyglað ?

Og auðvitað allt á kostnað íslensku þjóðarinnar.


mbl.is Skoða þörf á auknum útgjöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanhæf ríkisstjórn

Hvernig er hægt að  réttlæta það að skuldbinda þjóðina um 2,5 milljónir á hvert einasta mannsbarn á Íslandi, eingöngu vegna ICEsave reikninganna ???

 Á sama hátt og útrásarvíkingarnir settu þjóðina á hausinn, var ríkissjóður fyrst þurrausinn við að borga fjármagnseigendum það sem þeir ekki áttu (peningamarkaðssjóðirnir) og svo á að hneppa alla íslendinga í ánauð til langrar framtíðar.

Er þetta hægt ??


mbl.is Pólitísk staða ekki nýtt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband