Eva er mikilvæg fyrir íslensku þjóðina

Nauðsynlegt er að hafa heiðarlegt sjónarhorn á málunum. Munið að lang flestir alþingismenn og ráðherrar og frammá menn í þjóðfélaginu eru spilltir, þeir tóku við peningum þeirra sem brutu lögin og litu þessa brotamenn velvildaraugum, stoppuðu ekki í lagagötin og létu eftirlitið vera gagnslaust árum saman, þrátt fyrir sterk merki um vandamál í mörg ár.

 Því munu margir vilja að rannsóknin dagi uppi og er þetta þeirra aðferð; fjársvelti, mannsvelti, tækjasvelti og upplýsingasvelti.

Rétt að minna á; Samfylkingin var í stjórn og er ennþá í stjórn. Þau fengu stórar fjárhæðir í flokkssjóð og prófkjörin þeirra voru fjármögnuð með sömu skítugu peningunum.

Munið eftir því sem Davíð Oddsson sagði; skoða ætti betur einkahlutafélög alþingismanna og valdamanna í stjórnkerfinu. Hvaða fyrirgreiðslu fengu þeir ? Þ.e. hvernig var þeim hyglað ?

Og auðvitað allt á kostnað íslensku þjóðarinnar.


mbl.is Skoða þörf á auknum útgjöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband