Miðvikudagur, 6. ágúst 2008
Hækkun sjávaryfirborðs í Vatnsmýri
Spáð er að yfirborð sjávar hækki töluvert vegna hlýnunar andrúmsloftsins.
Hvenær fer Vatnsmýrin í kaf ??
Áhrif hlýnunar jákvæð á gróður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 29. júlí 2008
Arkitektar að reisa sér minnisvarða
Í samkeppni um hönnun nýbyggingar Listaháskóla Íslands fengu fimm keppendur á síðari stigum keppninnar samtals 7,5 milljónir fyrir tillögur sínar auk þess sem þrjár bestu tillögurnar hlutu átta milljónir, þar af fékk vinningstillagan fjórar. Greiðslur Samson vegna keppninnar nema því samtals 15,5 milljónum króna.
Þær myndir sem birtar hafa verið í fjölmiðlum sýna kumbalda sem alls ekki passar inn í umhverfið í kring. Aðstandendur Listaháskólans vilja náttúrulega að skólinn sé áberandi og arkitektar vilja reisa sér minnisvarða sem eftir er tekið.
Ég er nú eiginlega sammála borgar- og skipulagsyfirvöldum, þetta passar engan veginn inn í umhverfið. Þessir aðilar þurfa að útbúa tillögu sem fellur að heildarskipulagi svæðisins en ekki útbúa stakan minnisvarða sem stingur í stúf við umhverfið.
Þriðjudagur, 29. júlí 2008
Útivistar-Eiturefna-Paradísin Gufunes
Frétt í Morgunblaðinu í morgun, Gróið líf á gamla Sorpinu og neðangreind grein úr mbl.is, kemur alls ekkert á óvart. Niðurstöður eru staðfesting á því sem alltaf hefur verið vitað.
Þó er einkennilegt að lesa að "almennt stafar ekki mikil hætta af þeirri mengun, þ.e. burðarleiðir hennar til fólks eru afar takmarkaðar, ekki síst þar sem ekki verður um varanlega viðveru fólks að ræða á svæðinu heldur munu þeir sem nýta sér það koma og fara."
Skoðum aðeins; útivistarsvæði sem ætlað er börnum og almenningi. Hvaða foreldrar vilja senda börn sín á útivistarsvæði, þar sem varanleg viðvera getur skaðað heilsu þeirra ??
Hverjir velja sér að fara á útivistarsvæði, þar sem mengun geti skaðað heilsu þeirra á meðan þeir er á svæðinu ?? Á ekki útivist og heilbrigði að fara saman ??
Niðurstaða; ENGINN ótilneyddur.
Sem sé; skipulegga útivistarsvæði á gömlu sorphaugunum í Gufunesi sem standa mun autt, en uppfylla einkennilegan prósentureikning borgar- og skipulagsyfirvalda um græn svæði.
Varað við raski í Gufunesi
Fyrirhugað útivistarsvæði á gömlu sorphaugunum í Gufunesi þarfnast einhverrar endurskoðunar, ef marka má niðurstöður áhættumats sem Línuhönnun hf. vann fyrir Reykjavíkurborg. Metin voru hugsanleg áhrif mengunar á heilsu þeirra sem munu nýta sér svæðið og sýna niðurstöður að mengun er til staðar að því marki að mælst er gegn miklu jarðraski og byggingu lokaðra mannvirkja. Verði ýtrustu varfærni gætt við framkvæmdir er þó ekkert því til fyrirstöðu að byggja þar upp útivistarsvæði.
Eftir að hætt var að urða í Gufunesi var fyllt ofan á svæðið, grasi sáð og trjám plantað. Áætlað er að þykkt jarðvegsins ofan á úrganginum sé nú á bilinu 2-5 metrar.
Til að kanna mengunarhættuna á svæðinu og mögulegar afleiðingar af þeirri mengun var mæld samsetning hauggass, snefilgass, sigvatns og jarðvegs á 10 hektara svæði. Niðurstöðurnar sýna að mikil mengun er innan úrgangsfyllingarinnar en jafnframt að almennt stafar ekki mikil hætta af þeirri mengun, þ.e. burðarleiðir hennar til fólks eru afar takmarkaðar, ekki síst þar sem ekki verður um varanlega viðveru fólks að ræða á svæðinu heldur munu þeir sem nýta sér það koma og fara.
Öðru máli gæti hinsvegar gegnt um fólk sem starfar á svæðinu. Þeir sem vinna við uppbyggingu útivistarsvæðisins geta verið í hættu af menguðu sigvatni og jarðvegi ef framkvæmdirnar krefjast mikils jarðrasks. Því er mælt gegn röskun eða tilflutningi jarðvegs nema bráð nauðsyn þyki til. Í gildandi deiliskipulagi frá 2004 er gert ráð fyrir að í Gufunesi verði fjölbreytt útivistarsvæði með fótboltavöllum, skrúðgarði, golfæfingasvæði, leikvöllum o.fl. Þá er gert ráð fyrir möguleikanum á byggingu allt að 250 m² vallarhúss auk stækkunar á bæjarhúsi og fjósi gamla Gufunessbæjarins.
Sunnudagur, 8. júní 2008
Til hamingju Hanna Birna !!
Nú þegar skoðanakannanir benda til mikils fylgistaps sjálfstæðismanna í Reykjavík, er ekki úr vegi að spyrja af hverju ??
Hanna Birna hefur nú tækifæri til þess að vinna fylgið til baka. Þetta er tækifæri sem hún ætti ekki að láta renna sér úr greipum.
Sem ráðleggingu til hennar, þá ætti hún að spyrja sig, hverjir studdu Sjálfstæðisflokkinn í síðustu borgarstjórnarkosningum og velta fyrir sér hvað þeir kjósendur vilja.
Hún ætti, t.d. að byrja á því að andæfa sterklega orðum hafnfirðings úr Samfylkingunni, sem nú er formaður fjárlaganefndar Alþingis og vill fresta Sundabraut ennfrekar. Enga hjálp virðist vera að fá hjá núverandi samgönguráðherra (sem einnig er úr Samfylkingunni) sem vill eingöngu jarðgöng í sinni heimabyggð og er alveg sama um vandamál úthverfa Reykjavíkur.
Hanna Birna verður borgarstjóri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. apríl 2008
Engin Sundabraut ?
Eru þetta fyrstu merkin um að engin verði Sundabrautin ???
Samningurinn er til 15 ára og þurfum við þá að bíða í 15 ár áður en framkvæmdir hefjast ??
Við Grafarvogsbúar erum orðnir vanir því að bíða því Sundabraut kom fyrst inn á aðalskipulag 1984 eða fyrir 24 árum, hvað eru 15 ár í viðbót ???
.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 28. febrúar 2008
Ekki að undra að stjórnarandstaðan nái ekki saman um stjórnarmann
Eins og öllum var kunnugt, þá kom fráfarandi borgarstjórn sér ekki saman um málefnasamning vegna ólíkra skoðana í nánast öllum málum, svo er einnig með afstöðuna til REI. Hvort eiga stefnumál Framsóknar eða Vinstri grænna að ráða ? Hvað er þá til ráða ? Fá einhvern utanaðkomandi, en hver ætti það að vera ? Stjórnarseta í REI er pólitísk, en ekki endilega flokkspólitísk en pólitísk er hún örugglega.
Vil ég nota tækifærið og óska Kjartani og Ástu til hamingju með útnefninguna og er ég viss um að bæði muni standa sig vel á þessum vettvangi.
Leitað að fagstjórnanda í REI | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Er vit í þessu ??????????????
140 milljónir á einu ári. Hvað er þetta mikið ?
Sá sem er með 250.000 mánaðarlaun er með 3 milljónir í árslaun og því eru 140 milljónir 47 ár .
Það sem Hannes Smárason fær að launum fyrir Íslandsmet í tapi eins fyrirtækis á Íslandi jafngilda lífslaunum venjulegs verkamanns og hálfum lífslaunum háskólamenntaðs starfsmanns.
Laun forstjóra FL Group samtals 172 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 8. febrúar 2008
Af hverju rannsókn núna ?
Skipulagsyfirvöld í Reykjavík virðast leggja í vana sinn, að auglýsa erfiðar breytingar á skipulagi á þeim tímum þegar minnstar eru líkur á að almenningur taki eftir því, þ.e. um sumarleyfistímann.
Svo var um breytingu á skipulagi útivistarsvæðisins á Gufuneshaugum. Almenningur gat komið með athugasemdir á tímabilinu 20. júní - 1. ágúst 2007. Eingöngu kom fram ein athugasemd, þe. frá undirrituðum. Upprunalega skipulagstillagan var einnig auglýst um sumartíma og líklega komu fáar athugasemdir fram þá (þetta fór alveg framhjá mér eins og öðrum).
Í minni athugasemd bendi ég á að eitur- og spilliefni og útivistarsvæði fyrir börn fari ekki saman. Skipulagsyfirvöld virðast taka athugasemdina alvarlega og fagna ég því og fékk ég formlegt svar nú í vikunni.
Mikilvægast er þó hvernig landnýtingin verður og hversu heilsusamlegt það sé fyrir íbúa Grafarvogs og spyrjum því að leikslokum.
Lagði ég til við skipulagsyfirvöld að útivistarsvæðið yrði fært nær byggðinni og Strandvegurinn færður vestur fyrir Gufunesbæ, þe. slétt yrði úr beygjunni á Strandvegi og vegurinn færður fjær byggðinni og útivistarsvæði sett þar á milli, útivistarsvæði sem næði upp með Hallsvegi (mótmælti ég einnig stækkun athafnasvæðisins á Gylfaflöt á kostnað útivistarsvæðisins) og tengdist íþróttasvæðinu í Dalhúsum. Strandvegurinn yrði því beinn þar sem beygja er á honum núna og kæmi inn á Hallsveginn aðeins neðar. Strandvegurinn yrði því til að skilja á milli spilliefnanna á Gufuneshaugum og útivistarsvæðis Grafarvogsbúa.
Þó skipulagsyfirvöld sæju marga kosti við tillögu mína, þá sáu þeir ýmsa galla sem þeir mátu meira (hvaða mælistika var notuð ?). Ég fer daglega um þetta svæði og virðist mér að töluverður tími sé síðan þeir hjá Skipulaginu voru í Grafarvogi og skoðuðu svæðið fótgangandi. Þá fæst önnur tilfinning fyrir umhverfinu en loftmyndir geta sýnt en þær segja því miður ekki alla söguna og virðast þeir ekki átta sig nógu vel á hæðarlínum og öðrum staðháttum á þessu svæði.
Að lokum hvet ég skipulagsyfirvöld að mæta á svæðið og finna bestu lausnirnar fyrir íbúa Grafarvogs og setji fyrirhugaða tengivegi á þessu svæði, vegna Sundabrautar, alla í umhverfismat.
Fimmtudagur, 7. febrúar 2008
Hversu vel verða Gufuneshaugar rannsakaðir ??
Í Morgunblaðinu í morgun las ég frétt um að Umhverfissvið Reykjavíkurborgar fyrirhugi frekari mælingar á Gufuneshaugum því skipulag gerir ráð fyrir útivistarsvæði fyrir börn.
Fagna ég því að mælingar fari fram en óttast að þær verði ónógar. Línuhönnun vann við mælingar fyrir 8 árum og þá var eingöngu 3 mismunandi gastegundir mældar; metan (CH4), koldíoxíð (CO2) og súrefni (O2). Þó þessar gastegundir komi fyrir í mestu magni og hætta geti stafað af þeim þá hef ég meiri áhyggjur af öðrum efnum, t.d. verður geislavirkni mæld ?? (geislavirkur sjúkrahúsúrgangur ?) eða snefilgösum sem talið er að séu krabbameinsvaldandi og finnast í sorphaugagasi erlendis (t.d. Vinylklóríð, Bensen, Klóroform og Díklórmetan) eða aðrar eitraðar gastegundir.
Síðast en ekki síst; verða óstaðsettir eiturefnapyttir fundir, merktir og mældir?
P.S. Hér að neðan er afrit af fréttinni þar sem ég fann hana ekki á mbl.is. Veit ég ekki hver stefna Morgunblaðsmanna er en mér fannst nauðsynlegt að netverjar gætu lesið fréttina til að skilja innleggið mitt.
Línuhönnun rannsakar Gufuneshauga
Töluverð metangasvirkni árið 2000
ÁRIÐ 2000 fóru fram athuganir á metangasútstreymi á fyrrverandi urðunarstað sorps í Gufunesi. Þetta var þetta gert vegna fyrirhugaðrar Sundabrautar. Boraður var um einn tugur hola og reyndist vera töluverð metangasvirkni í haugunum.
Framundan eru nýjar athuganir í Gufunesi fyrir Mengunarvarnir hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar. Verkefni Umhverfissviðs Línuhönnunar felst í að meta styrk ýmissa efna í grunnvatni, jarðvegi og hauggasi á um 10 ha. svæði á gamla urðunarstaðnum og áhættu af þeim vegna framtíðarnýtingar svæðisins.
Einnig á að kanna hæð grunnvatns í jarðlögum og landsig. Enn fremur verður gerð grein fyrir aðgerðum til að verja mannvirki sem kunna að verða byggð á staðnum, reynist þörf á slíku miðað við ástand og þróun hauganna.
Loks verður sett fram mat á áhættu tengdri hugsanlegri notkun landsvæðisins, með og án fyrrgreindra varnaraðgerða.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.2.2008 kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 2. febrúar 2008
Laugarvegur 4-6
Þátturinn Krossgötur á Rás 1 er einn af mínum uppáhaldsþáttum frá upphafi. Í dag var rætt við Dag B. Eggertsson, Samfylkingu og hann spurður út í hvað varð úr metnaðarfullri áætlun fyrir Laugarveg þar sem suðurhluti vegarins átti ekki að vera meira en 2 hæðir með nothæfu risi, í því augnamiði að sólin fái að skína á vegfarendur.
Dagur svarar því til að eðlilegt sé að 2 hæðir og ris sem hugsanlega megi nýta séu uppá 12,5 metra !!!!
Í mínum huga eru 2 hæðir með risi; lofthæð 2,5m + gólfplata 0,3m + 2,5m + 0,3 + 2,0m = 7,6m.
Hér munar heilum 5 metrum sem í mínum huga eru 2 hæðir og engin von um að sólin skíni á vegfarandur á Laugarvegi !!!!!!!!!!!!!!!
Sést nú hversu mikið er að marka fögur loforð Dags og Samfylkingarinnar !!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)